Jógaferðir

Gefðu þér tíma til að hægja á

Komdu með okkur í jóga retreat þar sem dagarnir fá að snúast um jóga, hvíld og góða samveru. Í fallegu og friðsælu umhverfi gefst þér rými til að dýpka iðkunina, njóta náttúrunnar og hlúa að þér með nærandi mat og hægari takti. Við fléttum saman jógaiðkun, hugleiðslu og slökun og gefum okkur nægan tíma til að njóta þess sem hver staður hefur upp á að bjóða. Hér fyrir neðan finnur þú næstu retreat-ferðir okkar — og kannski ferðina sem þig hefur langað að gefa þér.