Kynning á jógaferðinni til Malaga

Kynning á jógaferðinni til Malaga

Dreymir þig um að gefa þér tíma fyrir sjálfa /n þig, njóta fallegrar náttúru, góðrar jógaiðkunar og nærandi samveru?

Við bjóðum þér á notalegt kynningarkvöld þar sem við segjum frá væntanlegri jógaferð okkar til Santillán í fjöllunum við Málaga á Spáni.

Við sýnum myndir af þessum einstaka stað og förum yfir jógadagskrána, gistingu, mat, verð og ferðatilhögun.

Það verður líka góður tími til að spjalla og spyrja spurninga.

📅 Sunnudaginn 22. nóvember 2026
🕓 Kl. 16:00–17:00
📍 Asana Jóga, Faxafeni 10, 2. hæð, Reykjavík

Hvort sem þú ert þegar skráð/ur í ferðina eða ert að velta henni fyrir þér, þá ertu hjartanlega velkomin.

Hlökkum til að sjá þig!

Bríet og Unnur

Deildu þessum pósti: