Morguntímar með Iyengar jóga – Tíminn er samhliða kenndur á Zoom og þú getur komið og verið með í salnum eða verið heima og stundað þitt jóga.
Við hittumst tvisvar í viku snemma morguns og byrjum daginn á markvissri iðkun sem vekur líkamann, eykur styrk og liðleika og undirbýr okkur fyrir daginn fram undan.
Allur búnaður er til staðar í salnum og þú þarft ekki að hafa fyrri reynslu af Iyengar jóga.
Vandaðir jógatímar með áherslu á styrk, liðleika og góða líkamsstöðu. Kennt er samkvæmt Iyengar-aðferðinni, þar sem nákvæmni, líkamsvitund og skýrar leiðbeiningar eru í fyrirrúmi. Gefinn er tími til að finna stöðugleika í stöðunum og jógabúnaður, svo sem kubbar, belti og stólar, nýttur til að styðja við iðkunina. Æfingar eru aðlagaðar að ólíkri getu og hverjum tíma lýkur með slökun.
Allur búnaður er til staðar í salnum og þú þarft ekki að hafa fyrri reynslu af Iyengar jóga.
Langar þig að byrja í jóga en veist ekki hvar þú átt að byrja? Þessir tímar henta þeim sem hafa litla sem enga reynslu af jóga og vilja byggja upp góðan grunn í rólegu og styðjandi umhverfi. Þau sem vilja rifja upp grunnatriðin eru einnig velkomin.
Í tímunum lærir þú helstu jógastöðurnar, góða líkamsbeitingu, meðvitaða öndun og einfaldar slökunaraðferðir. Við nýtum jógabúnað til stuðnings og aðlögum stöðurnar að þörfum hvers og eins. Áhersla er lögð á að vinna á eigin forsendum og byggja smám saman upp öryggi og sjálfstraust í iðkuninni.
Þetta er opinn tími sem þú getur sótt reglulega eða komið í þegar hentar. Ekki þarf að skrá sig á heilt námskeið, en bóka þarf hvert skipti áður en mætt er.
Tímarnir eru jafnframt teknir upp á Zoom og þau sem eru skráð fá aðgang að upptökunni. Þannig getur þú endurtekið tímann heima og æft þig á milli tíma. Ef þú kemst ekki í salinn getur þú tekið tímann heima þegar þér hentar.
Allur jógabúnaður er á staðnum. Þú þarft aðeins að koma í þægilegum fatnaði — við tökum vel á móti þér.
Þetta námskeið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem hafa áður stundað jóga og vilja viðhalda eða dýpka iðkun sína. Kennslan byggir á Iyengar Yoga þar sem lögð er áhersla á nákvæmni, góða líkamsstöðu og einstaklingsmiðaða leiðsögn.
Tímabil: 26. ágúst – 16. desember 2026. (ath aðeins hægt að skrá sig á allt námskeiðið í einu).
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 18:15–19:30 (75 mínútur)
Kennari: Bríet Birgisdóttir
Verð: Kr. 101.000 fyrir haustönnina með eingreiðslu eða
25.900 kr. á mánuði. (sent í heimabanka)
Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa áður stundað jóga og vilja dýpka iðkun sína. Kennslan byggir á Iyengar Yoga þar sem lögð er áhersla á nákvæmni, stöðugleika og meðvitaða vinnu í hverri stöðu.
Við vinnum markvisst með flóknari stöður, höldum lengur í stöðum og vinnum markvisst með öndunaræfingar. Jógabúnaður eins og reipi, kubbar, belti og stólar eru notuð til að styðja við nákvæma og örugga iðkun. Reynsla er nauðsynleg til að geta verið í þessum hópi.
Tímabil: 26. ágúst – 16. desember 2026 (ath. aðeins hægt að skrá sig á allt námskeiðið í einu).
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 16:30–18:00 (90 mínútur)
Kennari: Bríet Birgisdóttir
Verð: kr. 105.000 fyrir haustönnina með eingreiðslu eða kr. 26.900 á mánuði.