Verð og greiðslur

Gildir fyrir 4 vikna námskeið

Athugið að námskeið eru venjulega greidd í gegnum heimabanka en einnig má ganga frá greiðslu með greiðslukorti með þessum hlekk.

Gildir fyrir 4 vikna námskeið

Athugið að námskeið eru venjulega greidd í gegnum heimabanka en einnig má ganga frá greiðslu með greiðslukorti með þessum hlekk.

Heilsuráðgjöf

Einkatímar í heilsuráðgjöf Í einkatímum í heilsuráðgjöf færð þú persónulega leiðsögn sem tekur mið af þínum þörfum, markmiðum og lífsstíl. Unnið er með næringu, hreyfingu, venjur og hugarfar á heildrænan hátt með það að markmiði að styðja við betri líðan og varanlegar breytingar. Leiðbeinandi er Bríet Birgisdóttir, hjúkrunarfræðingur, lýðheilsufræðingur og jógakennari, með langa reynslu af ráðgjöf í tengslum við heilsu og hreyfingu. Tímarnir henta vel fyrir þá sem vilja ná betra jafnvægi, auka orku, bæta heilsu eða fá stuðning á sinni vegferð í átt að heilbrigðari lífsstíl.

Einkatími í jóga

Einkatímar í jóga eru 75–90 mínútur og sniðnir að þínum þörfum. Tímarnir henta bæði byrjendum og lengra komnum og gefa rými til að dýpka skilning á stöðum, líkamsbeitingu og öndun. Unnið er á rólegan og markvissan hátt með áherslu á styrk, liðleika og slökun, þar sem hver og einn fær einstaklingsmiðaða leiðsögn. Þetta er frábær leið til að efla líkamsvitund, minnka streitu og styðja við vellíðan í daglegu lífi. Hafðu samband og við finnum tíma fyrir þig.