Vandaðir jógatímar með áherslu á styrk, liðleika og góða líkamsstöðu. Kennt er samkvæmt Iyengar-aðferðinni, þar sem nákvæmni, líkamsvitund og skýrar leiðbeiningar eru í fyrirrúmi. Gefinn er tími til að finna stöðugleika í stöðunum og jógabúnaður, svo sem kubbar, belti og stólar, nýttur til að styðja við iðkunina. Æfingar eru aðlagaðar að ólíkri getu og hverjum tíma lýkur með slökun.
Námskeiðsupplýsingar
- Lengd: 4 vikur
Dagsetningar: 19.október – 11. nóvember 2026
Tími: Mánudagar og Miðvikudagar kl. 10:00–11:15
Kennari: Bríet Birgisdóttir - Verð: 24.900 kr. á mánuði
Allur búnaður er til staðar í salnum og þú þarft ekki að hafa fyrri reynslu af Iyengar jóga.