Retreat á Krít 24. – 31. maí 2027

Fullbókað - Biðlisti

Retreat á Krít 24. – 31. maí 2027

Jóga á Krít 24.–31. maí 2027

Sjö nætur í Chora Sfakion á suðurströnd Krítar með Bríeti og Unni. Við iðkum jóga hjá Yoga on Crete, á viðarpalli undir ólífutrjánum eða í yfirbyggðu aðstöðunni þar sem er Iyengar-reipaveggur og jógabúnaður. Þetta er sú iðkun sem við kennum og stundum í okkar jógastúdíói.

Jógakennsla hjá Asana Jóga · 85.000 kr. á mann
Við skráningu greiðir þú 20.000 kr. staðfestingargjald sem gengur upp í kennslugjaldið.

Eftirstöðvar eru 65.000 kr. Gisting og fæði greiðast sérstaklega í evrum.

Útsýni af efri hæðinni

Herbergin í Jógahúsinu

Verðin hér að neðan eru á mann fyrir sjö nætur. Innifalið er gisting, sjö brunch-máltíðir, fimm kvöldverðir, aðgangur að jógaaðstöðu og búnaði, þrif og 15% VSK. Grænmetisréttirnir sækja innblástur í krítverska matargerð.

Thyme · 35 m² – Fullt

Rúmgott herbergi á jarðhæð með sérbaði og aðgangi að sameiginlegum garði og útisvæði. Hægt er að hafa tvö eða þrjú rúm. Þegar þrjár deila er eitt rúm á svefnlofti.

  • 890 € á mann þegar tvær deila
  • 820 € á mann þegar þrjár deila

Oleander · 35 m² – Fullt

Rúmgott herbergi á efri hæð með sérbaði og stórri einkaverönd. Hægt er að hafa hjónarúm, tvö aðskilin rúm eða þrjú svefnpláss.

  • 890 € á mann þegar tvær deila
  • 820 € á mann þegar þrjár deila

Bougainvillae · 35 m² – Fullt

Prinsessu herbergið

Herbergi á efri hæð með hjónarúmi, sérbaði og einkaverönd. Fortjald skilur svefnrýmið frá baðherberginu. Herbergið hentar vel pari, nánum vinkonum eða einum gesti.

  • 890 € á mann þegar tvær deila
  • 1.130 € fyrir einn gest

Olive · 12 m² Fullt

Kennararnir gista hér 🙂

Lítið herbergi á jarðhæð með aðgangi að sameiginlegu baðherbergi, garði og útisvæði. Það rúmar einn eða tvo gesti.

  • 670 € á mann þegar tvær deila
  • 820 € fyrir einn gest

Gisting í þorpinu – 1- 2 tvö pláss laus.


Bæði hótelin eru í göngufæri við Jógahúsið. Hér eru viðmiðunarverð úr verðskrá Yoga on Crete fyrir sjö nætur með fæði og aðstöðu. Herbergistegund, framboð og endanlegt verð eru staðfest fyrir bókun.

GistingTveggja manna herbergi með sérbaðiEinstaklingsherbergi með sérbaði
Eleana Nature & Art · um 500 m frá Jógahúsinu910 € á mann1.265 €
Four Seasons · um 100 m frá Jógahúsinu725 € á mann900 €

Ef þú bókar gistingu sjálf annars staðar er verðið fyrir máltíðir og aðgang að aðstöðu 550 € á mann. Gistingin bætist þá við.

Bókun og greiðslur

Ef þú gistir í Jógahúsinu greiðir þú 550 € í innborgun beint til Yoga on Crete. Sú greiðsla gengur upp í verð gistingar og fæðis. Ef þú vilt gista á Eleana staðfestir þú herbergi og verð beint við hótelið. Yoga on Crete sendir greiðsluupplýsingar fyrir sinn hluta.

Hefur þú áhuga á að koma með?
Sendu okkur fyrirspurn um laus pláss og segðu okkur hvaða herbergi hentar þér best.

Komdu með okkur í einstakt jóga retreat á fallegu eyjunni Krít þar sem þú getur dýpkað jógaiðkunina þína, slakað á og fyllt á batteríin í yndislegri  náttúru. Þetta retreat er fyrir alla, óháð reynslu af jóga. Það er að sjálfsögðu mikill kostur að hafa stundað jóga áður. 

Hvað býður retreatið upp á?

  • Daglegar jógaæfingar: Hatha (Iyengar) jóga á morgnana og Restorative  jóga á kvöldin.
  • Hugleiðslustundir og öndunaræfingar.
  • Næringarríkar grænmetis máltíðir eldaðar  á staðnum úr hráefnum frá Krít.
  • Nægur tími til að njóta strandarinnar, synda í kristaltæru hafinu eða skoða fallega náttúru Krítar.

Hver er staðsetningin? Retreatið verður haldið í Chora Sfakion sem er friðsælt og fallegt lítið þorp á suður hluta eyjunnar. 

Fyrir hvern er retreatið? Retreatið er fyrir alla sem vilja slaka á, dýpka jógaiðkun sína og njóta samveru með öðrum í dásemlega nærandi umhverfi. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin(n) í jóga.

OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Dagskrá:

  • kl. 07:30 – 09:30 Morgunjóga og hugleiðsla til að vekja líkamann og hugann.
  • 10:30 Morgunverður úr lífrænu hráefni frá Krít.
  • 10:30 – 17:30 Frjáls tími til að slaka á, synda í sjónum, róa á kajak, fara í göngutúr eða bara njóta útsýnisins.
  • 17:30 – 19:00  Restorative jóga undir ólívutrjám.
  • 19:15 Kvöldverður eldaður á staðnum úr hráefnum frá Krít (grænmetisfæði)

Deildu þessum pósti: