Jógatímarnir eru fjölbreyttir og enginn tími er eins. Við kennum Hatha jóga með Iyengaráherslu en það þýðir að kennslan er nákvæm og talsvert er unnið með tækni í jógastöðunum. Nemendur fá góðan tíma til að vinna í hverri stöðu og við notum oft mikið af jógabúnaði til þess að fá meira út úr hverri stöðu. Tveir kennarar eru í hverjum tíma. Næsta námskeiðalota hefst í janúar 2025, kennsla fer fram í sal Yoga&Heilsu í Síðumúla 15.
Við höldum skemmtilegar vinnustofur nokkrum sinnum á ári. Á vinnustofum æfum við höfuðstöður og ýmsar útgáfur af herðastöðu og öðrum jógastöðum sem getur verið gagnlegt að læra vel áður en maður fer að iðka þær mikið. Þú lærir um anatómíu skemmtilegar aðferðir við að nota jógabúnað eins og stóla, bönd í veggjum, pullur og belti svo eitthvað sé nefnt. Vinnustofur eru bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Jógakennarar geta líka lært mikið á þessum vinnustofum.
asana.heilsa@gmail.com
+7741192
Allur réttur áskilin