Stöðugleiki í hreyfanleika - Hlédrag kl. 10:00–15:00​

Stöðugleiki í hreyfanleika

Hlédrag – sunnudaginn 15. febrúar | kl. 10:00–15:00

Gefðu þér tíma til að hlúa að sjálfri/um þér allan sunnudaginn.

Þetta hlédrag býður þér að staldra við, draga andann djúpt og gefa líkama og huga rými. Dagurinn er byggður upp þannig að hann sameinar styrk og mýkt, virkni og djúpa hvíld – stöðugleika í hreyfanleika.


Dagskrá

10:00–11:30 – Iyengar jóga

Kennari: Eva Hallbeck

Iyengar jóga leggur áherslu á nákvæmni, samstillingu og meðvitund í líkamanum. Notast er við hjálpartæki eins og kubba, belti og teppi til að styðja við stöður og gera æfinguna aðgengilega öllum.
Jógatíminn byggir upp stöðugleika, styrkir líkama og liðamót og skapar öruggan grunn fyrir aukinn hreyfanleika.
Tíminn hentar öllum – einnig byrjendum.


11:30–12:30 – Nærandi hádegisverður

Yljandi og nærandi hádegisverður (grænmetissúpa og brauð) sem gefur orku og næringu fyrir bæði líkama og huga.


12:30–13:30 – Yin jóga

Kennari: Ásta Þórarinsdóttir

Yin jóga samanstendur af rólegum og djúpum stöðum þar sem unnið er með bandvef, liðamót og orkuflæði líkamans. Stöðunum er haldið lengur og þær bjóða upp á mýkt, kyrrð og aukna innri athygli.


13:45–15:00 – Restorative jóga

Kennarar: Unnur Einarsdóttir & Bríet Birgisdóttir

Restorative jóga er djúp slökun þar sem líkaminn fær fullan stuðning í hverri stöðu. Markmiðið er að róa taugakerfið, endurnæra orkuna og leyfa líkamanum að jafna sig.
Þátttakendur fá heita sandpoka á líkamann til að dýpka slökunina enn frekar – fullkominn endir á hlédragi dagsins.


Fyrir hverja?

Hlédragið hentar öllum, bæði byrjendum og lengra komnum. Æfingarnar eru aðlagaðar að ólíkum þörfum og áhersla lögð á örugga, meðvitaða og nærandi iðkun.


Verð

22.900 kr.
Innifalið:
– Allar jógastundir
– Nærandi hádegisverður
– Allur búnaður á staðnum