Komdu með okkur í einstakt jóga retreat á fallegu eyjunni Krít þar sem þú getur dýpkað jógaiðkunina þína, slakað á og fyllt á batteríin í yndislegri náttúru. Þetta retreat er fyrir alla, óháð reynslu af jóga. Það er að sjálfsögðu mikill kostur að hafa stundað jóga áður.
Hvað býður retreatið upp á?
Hver er staðsetningin? Retreatið verður haldið í Chora Sfakion sem er friðsælt og fallegt lítið þorp á suður hluta eyjunnar.
Fyrir hvern er retreatið? Retreatið er fyrir alla sem vilja slaka á, dýpka jógaiðkun sína og njóta samveru með öðrum í dásemlega nærandi umhverfi. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra komin(n) í jóga.
Dagskrá:
Komdu með í nærandi jógahlédrag á Santillán á Costa del Sol á Spáni.
Í fallegu og friðsælu umhverfi, aðeins um 30 mínútur frá Malaga, færðu 6 nætur með daglegri jógaiðkun, hugleiðslu og djúpri slökun sem styður við endurnýjun og jafnvægi.
Gist er í notalegum herbergjum með sér baðherbergi og svölum eða verönd með útsýni yfir haf eða fjöll. Boðið er upp á heilnæmt Miðjarðarhafsfæði úr fersku og lífrænu hráefni, þar sem lögð er áhersla á næringu og bragðgæði.
Við veljum alltaf staðsetningar útfrá hversu góð jógaaðstaðan er og hér er hún fyrsta flokks. Þrír vel útbúnir jógasalir með öllum hugsanlegum búnaði í rólegu umhverfi þar sem þú getur einnig slakað á, notið náttúrunnar, sundlaugarinnar eða farið í gönguferðir milli jógatíma.
Hlédragið hentar þeim sem vilja dýpka jógaiðkun sína, styrkja tengingu við líkama og huga og gefa sér tíma til að hlaða orkuna.