Morgunnámskeið í jóga
Nýtt morgunnámskeið í Iyengar jóga hefst hjá Asana Jóga mánudaginn 5. október.
Við hittumst tvisvar í viku snemma morguns og byrjum daginn á markvissri iðkun sem vekur líkamann, eykur styrk og liðleika og undirbýr okkur fyrir daginn fram undan.
Mánudagar og miðvikudagar
kl. 6:15–7:15
Kennari er Guðríður Nanna Helgadóttir, löggiltur Iyengar Yoga kennari.
Guðríður Nanna kynntist Iyengar jóga árið 2005 og segir sjálf að þegar hún kom í sinn fyrsta Iyengar tíma hafi henni liðið eins og hún væri „komin heim“. Hún hóf kennaranám hjá Jette Berring í Kaupmannahöfn árið 2018 og lauk Level One Iyengar Yoga kennararéttindum árið 2025.
Guðríður Nanna er einnig söngkona og löggiltur tónlistarkennari. Bakgrunnur hennar í tónlist og kennslu mótar nálgun hennar að jóga, þar sem áhersla er á nærveru, hlustun, nákvæmni og tengingu við líkamann.
Námskeiðið hefst 5. október
Mánudagar og miðvikudagar kl. 6:15–7:15
Verð: 23.900 kr. fyrir mánuðinn
Allur búnaður er til staðar í salnum og þú þarft ekki að hafa fyrri reynslu af Iyengar jóga.