Um námskeiðið

Iyengar jóga er markviss og uppbyggileg jógaiðkun sem leggur áherslu á nákvæmni, góða líkamsstöðu og einstaklingsmiðaða kennslu. Með hjálp stoðtækja eins og kubba, belta, stóla og bolstra eru æfingarnar aðlagaðar hverjum og einum – óháð aldri, reynslu eða líkamlegri getu.

Á námskeiðinu leggjum við áherslu á að:

✓ Efla styrk og stöðugleika
✓ Bæta liðleika og hreyfigetu
✓ Auka jafnvægi og líkamsvitund
✓ Þjálfa öndun og einbeitingu
✓ Byggja upp örugg og heilbrigð hreyfimynstur

Kennt er í litlum hópum þar sem hver þátttakandi fær persónulega leiðsögn og einstaklingsmiðaðar útfærslur. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem vilja byggja sig upp eftir álag, veikindi eða langvarandi hreyfingarleysi.

Rannsóknir benda til að Iyengar jóga geti stuðlað að minni verkjum, bættri líkamlegri virkni, auknum lífsgæðum og minni streitu.


Upplýsingar

Lengd: 8 vikur
Dagsetningar: 26. ágúst – 14. október 2026
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 10:00–11:15
Kennari: Eva Hallbeck

Verð

24.900 kr. á mánuði
Greiðist í tveimur greiðslum (samtals 49.800 kr.).