Restorative jóga – djúp slökun og endurnýjun

Hvenær gafstu þér síðast leyfi til að stoppa?

Í annasömu lífi er auðvelt að gleyma því að líkaminn þarf ekki aðeins hreyfingu heldur líka hvíld. Í Restorative jóga fá bæði líkami og hugur tækifæri til að hægja á sér og endurheimta jafnvægi.

Í tímunum er unnið með einfaldar og þægilegar stöður þar sem líkaminn fær fullan stuðning með púðum, teppum og öðrum hjálpartækjum. Þannig getur hann losað um spennu án áreynslu á meðan taugakerfið fær tækifæri til að róast.

Markmiðið er ekki að teygja meira eða styrkja líkamann heldur að skapa aðstæður fyrir djúpa slökun, endurheimt og vellíðan. Meðvitund um öndun og núvitund leiðir iðkunina og margir upplifa meiri ró, betri svefn og aukna orku eftir tímana.

Rannsóknir benda til að regluleg iðkun restorative jóga geti dregið úr streitu, stutt við endurhæfingu og haft jákvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan.

Námskeiðið hentar öllum, sérstaklega þeim sem upplifa streitu, þreytu eða vilja gefa sér rými til að hvílast og endurnærast.

Námskeiðsupplýsingar

Námskeið 1: 10. ágúst – 2. september 2026
Námskeið 2: 14. september – 7. október 2026
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 13:30–15:00 (90 mín.)
Lengd: 4 vikur 
Kennari: Bríet Birgisdóttir
Verð: 29.900 kr.