Bríet Birgisdóttir – jógakennari og eigandi Asana Jóga
Bríet er hjúkrunarfræðingur og lýðheilsufræðingur með djúpan áhuga á heildrænni heilsu, vellíðan og tengingu líkama og hugar.
Hún hefur lokið víðtæku jóganámi á Norðurlöndum og í Ástralíu, þar á meðal 200 og 300 tíma kennaranámi hjá Yoga Works og 250 tíma námi í Iyengar jóga hjá Glenn Cersoli. Hún hefur einnig menntað sig í meðgöngu- og Yin jóga og heldur áfram að dýpka iðkun sína hjá Brigittu Tummon, Iyengar jógakennara í Osló.
Bríet hefur verið aðstoðarkennari í kennaranámi hjá Yoga Works og í Yin jóga kennaranámi með David Kim. Hjá Asana Jóga kennir hún Hatha jóga með áherslu á nákvæmni, ró og líkamsvitund, þar sem hlúð er að líkama og huga.