Afsakið hlé — djúpslökun fyrir þig.

Miðvikudaginn 2. desember bjóðum við, Bríet og Unnur, þér í nærandi stund með Endurheimt – Restorative jóga.

Við verðum tvær að hlúa að þér, aðlaga jógabúnaðinn og hjálpa þér að finna þægilega hvíld í hverri stöðu. Teppin, pullurnar og stuðningurinn eru úthugsuð svo þú getir sleppt takinu og leyft þér að njóta.

Þú þarft enga reynslu af jóga. Komdu eins og þú ert og leyfðu okkur að sjá um þig þessa stund.

Miðvikudaginn 2. desember kl. 19:45 – 21:15
Asana Jóga · Faxafeni 10, 2. hæð
Verð: kr. 6500