AFSAKIÐ HLÉ
Hvenær gafstu þér síðast tíma til að gera ekki neitt?
Við lifum í samfélagi þar sem við erum stöðugt að gera, ná árangri og halda áfram. Stundum getur það því verið næstum róttækt að stoppa – og leyfa sér einfaldlega að hvílast.
Í þessum 90 mínútna Restorative jógatíma ætlum við að gera einmitt það – hvíla.
Við komum okkur fyrir í vel studdum stöðum með púðum, teppum og öðrum jógabúnaði og dveljum lengi í hverri stöðu. Þegar líkaminn þarf ekki lengur að halda sér uppi skapast rými til að sleppa takinu, hægja á og finna meiri kyrrð.
Róttæk hvíld snýst ekki um að gera hvíldina „rétt“. Hún snýst um að gefa sér leyfi til að hætta að gera – um stund.
þetta verður algjör lúxus þar sem tveir kennarar dekra við þig og hjálpa þér að ná djúpri og nærandi hvíld.
Föstudaginn 9. október
Kl. 17:00–18:30
Asana Jóga, Faxafen 10, 2. hæð
Verð: 5.500 kr.
Engin reynsla af jóga er nauðsynleg og allur búnaður er á staðnum. Þú þarft bara að mæta í þægilegum fötum.
Takmarkaður fjöldi plássa.