Guðríður Nanna Helgadóttir – Iyengar jógakennari
Guðríður Nanna er löggiltur Iyengar jógakennari, söngkona og tónlistarkennari með áralanga kennslureynslu. Hún hefur stundað Iyengar jóga frá árinu 2005 og lauk Level One kennaranámi hjá Jette Berring í Kaupmannahöfn árið 2025.
Í kennslu hennar mætast nákvæmni, hlustun og nærvera. Bakgrunnur hennar í tónlist mótar nálgunina, þar sem meðvitund og tenging við líkamann eru í fyrirrúmi.