Unnur Einarsdóttir

Jógakennari

Unnur Einarsdóttir

Unnur Einarsdóttir – jógakennari

Unnur er jógakennari, nuddari og nálastungufræðingur með áralanga reynslu af vinnu með líkama, hreyfingu og vellíðan. Hún hefur lært bæði Iyengar- og Kundalini-jóga og hefur sérstaka reynslu af Restorative-jóga, meðal annars sem aðstoðarkennari hjá Judith Hanson Lasater.

Hjá Asana Jóga kennir Unnur byrjenda- og Restorative-jóga með áherslu á góða líkamsbeitingu, stuðning og slökun.