Þetta námskeið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem hafa áður stundað jóga og vilja viðhalda eða dýpka iðkun sína. Kennslan byggir á Iyengar Yoga þar sem lögð er áhersla á nákvæmni, góða líkamsstöðu og einstaklingsmiðaða leiðsögn.
Æfingarnar eru kenndar í skýrum skrefum og aðlagaðar að getu hvers þátttakanda. Stoðtæki eins og kubbar, belti, stólar, bolstrar og reipi eru notuð markvisst til að styðja við líkamsstöður og gera öllum kleift að vinna á sínum eigin forsendum. Námskeiðið er langt til þess að nemendur nái að byggja upp góðan grunn og finnist þeir ekki sífellt vera á byrjunarreit.
Í tímunum vinnum við með fjölbreyttar jógastöður sem efla styrk, liðleika, jafnvægi og líkamsvitund. Jafnframt leggjum við áherslu á öndun, einbeitingu og örugg hreyfimynstur sem nýtast bæði í jógaiðkun og daglegu lífi.
Kennt er í litlum hópum þar sem hver þátttakandi fær persónulega leiðsögn og einstaklingsmiðaðar útfærslur. Þannig geta byrjendur byggt upp traustan grunn á meðan þeir sem hafa meiri reynslu geta dýpkað skilning sinn og þróað iðkun sína áfram.
Tímabil: 26. ágúst – 16. desember 2026
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 18:15–19:30.
Kennari: Bríet Birgisdóttir
Verð: 25.900 kr. á mánuði eða eingreiðsla 101.000 kr.