Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa áður stundað jóga og vilja dýpka skilning sinn og þróa iðkun sína áfram. Kennslan byggir á Iyengar Yoga, sem leggur áherslu á nákvæmni, stöðugleika og markvissa uppbyggingu bæði líkama og hugar.
Í tímunum vinnum við ítarlega með asönur (jógastöður), öndun og líkamsvitund. Áhersla er lögð á að byggja upp styrk, liðleika, jafnvægi og úthald á öruggan hátt þar sem hver staða er kennd í skýrum skrefum. Jógabúnaður eins og reipi, kubbar, belti, stólar og bólstrar eru notuð markvisst til að dýpka skilning á stöðunum, bæta líkamsstöðu og gera æfingarnar aðgengilegar án þess að fórna nákvæmni.
Á námskeiðinu gefst þátttakendum tækifæri til að vinna með flóknari asönur, dvelja lengur í stöðum og vinna áfram með höfuðstöðu og herðastöðu. Jafnframt er unnið með bakbeygjur, snúninga og frambeygjur þannig að iðkunin verði bæði fjölbreytt og uppbyggileg.
Kennslan fer fram í litlum hópum þar sem hver þátttakandi fær persónulega leiðsögn og einstaklingsmiðaðar útfærslur. Markmiðið er að byggja upp örugga og sjálfstæða iðkun þar sem nákvæmni, stöðugleiki og meðvitund verða grunnurinn að frekari framförum.
Námskeiðið hentar þeim sem vilja:
Tímabil: 26. ágúst – 16. desember 2026
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 16:30–18:00 (90 mínútur)
Kennari: Bríet Birgisdóttir
Verð: 26.900 kr. á mánuði eða eingreiðsla kr. 105.000kr.
Greitt er fyrir einn mánuð í senn og þátttakendur halda áfram frá mánuði til mánaðar.