Námskeið hjá Asana Jóga

Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða hefur iðkað jóga í mörg ár finnur þú hér námskeið sem styðja við styrk, hreyfigetu og innri ró.

Virkni og líkamsvitund

Byrjaðu daginn með markvissri Iyengar-jógaiðkun þar sem áhersla er lögð á styrk, líkamsvitund og góða líkamsstöðu. Hentar bæði byrjendum og lengra komnum.

Námskeiðsupplýsingar

  • Lengd: 8 vikur
    Dagsetningar: 26. ágúst – 14. október 2026
    Tími: Miðvikudagar kl. 10:00–11:15
    Kennari: Eva Hallbeck
  • Verð: 24.900 kr. á mánuði
    (2 greiðslur – samtals 49.800 kr.)
 
 
 
 

Hádegisslökun 50 mín

50 mínútur sem geta breytt restinni af deginum.

Hádegisslökun er róleg og endurnærandi stund sem sameinar Restorative Yoga, Yoga Nidra og öndunaræfingar. Tíminn hjálpar þér að losa um spennu, róa taugakerfið og endurhlaða líkama og huga áður en haldið er áfram með daginn.

Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg.

Námskeiðsupplýsingar

  • Lengd: 4 vikur
  • Dagsetningar: 26. ágúst – 16. september 2026
  • Tími: Miðvikudagar kl. 12:00–12:50
  • Kennari: Bríet Birgisdóttir
  • 22.900 kr.

Endurstilltu taugakerfið með Restorative jóga

Restorative jóga er djúpt nærandi iðkun sem hjálpar líkama og huga að slaka á og endurheimta jafnvægi. Með stuðningi frá púðum, teppum og öðrum stoðtækjum fær taugakerfið tækifæri til að róast og endurhlaða sig.

Námskeiðsupplýsingar

Lengd: 4 vikur
Dagsetningar:
• Námskeið 1: 10. ágúst – 2. september 2026
• Námskeið 2: 14. september – 7. október 2026
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 13:30–15:00 (90 mínútur)
Kennari: Bríet Birgisdóttir
Verð: 29.900 kr.

Iyengarjóga Framhaldsnámskeið

Þetta námskeið er ætlað þeim sem hafa áður stundað jóga og vilja dýpka iðkun sína. Kennslan byggir á Iyengar Yoga þar sem lögð er áhersla á nákvæmni, stöðugleika og meðvitaða vinnu í hverri stöðu.

Við vinnum markvisst með flóknari stöður, höldum lengur í stöðum og vinnum markvisst með öndunaræfingar. Jógabúnaður eins og reipi, kubbar, belti og stólar eru notuð til að styðja við nákvæma og örugga iðkun. Reynsla er nauðsynleg til að geta verið í þessum hópi. 

Námskeiðsupplýsingar

Tímabil: 26. ágúst – 16. desember 2026. 
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 16:30–18:00 (90 mínútur)
Kennari: Bríet Birgisdóttir
Verð: 26.900 kr. á mánuði

Iyengarjóga grunnur og framhaldstímar

Þetta námskeið hentar jafnt byrjendum sem þeim sem hafa áður stundað jóga og vilja viðhalda eða dýpka iðkun sína. Kennslan byggir á Iyengar Yoga þar sem lögð er áhersla á nákvæmni, góða líkamsstöðu og einstaklingsmiðaða leiðsögn.

Námskeiðsupplýsingar

Tímabil: 26. ágúst – 16. desember 2026 (4 mánuðir). 
Tími: Mánudagar og miðvikudagar kl. 18:15–19:30 (75 mínútur)
Kennari: Bríet Birgisdóttir

Verð:
25.900 kr. á mánuði

Eingreiðsla:
96.000 kr.