Iyengar jóga með Brigittu Tummon



Skrá mig á vinnustofuna

Við fáum einstaka heimsókn í Asana Jóga þegar Brigitta Tummon, senior Iyengar-jógakennari, kemur til Íslands og kennir tveggja tíma tíma hjá okkur.

 Sunnudagur 20. september
 12:15–14:15
 Asana Jóga, Faxafeni 10

Verð kr. 7000

Greiðsluseðill kemur í heimabanka.

Brigitta hefur iðkað jóga frá því hún var rúmlega tvítug og kennt Iyengar jóga í áratugi í Hollandi, Sviss, Suður-Afríku og nú Noregi.

Hún kynntist B.K.S. Iyengar snemma á sínum jógaferli og sótti intensive-námskeið hjá honum í Pune á Indlandi þegar á áttunda og níunda áratugnum, auk fjölmargra námskeiða síðar. Kenningar hans, nákvæmni og sköpunarkraftur hafa fylgt henni alla tíð.

Brigitta bjó í 30 ár í Suður-Afríku þar sem hún kenndi allt frá byrjendum til lengra kominna iðkenda og tók virkan þátt í starfi Iyengar Yoga Institute, meðal annars sem kennaranámskennari og matsaðili kennara.

Hún lýsir jóga sem stöðugum förunaut í lífinu – einhverju sem veitir stuðning en heldur líka áfram að ögra, kenna og koma á óvart.

Í kennslu sameinar Brigitta mikla reynslu og nákvæmni með hlýju, umhyggju og léttleika.

Fyrir hverja?

Tíminn er opinn öllum sem hafa áhuga á að kynnast Iyengar jóga betur. Þú þarft ekki að vera langt komin/n í jóga. Við bjóðum bæði okkar eigin nemendum og öðrum jógaiðkendum og jógakennurum að taka þátt.

Þetta er sjaldgæft tækifæri til að læra af kennara sem hefur fylgt Iyengar-hefðinni og þróun hennar í nær hálfa öld.