Endurstilltu taugakerfið – Námskeið fyrir slökun og endurheimt (4 vikur).
Dagsetning: 9. mars – 1. apríl 2026 (4 vikur).- Kennsludagar: Mánudagar & miðvikudagar
- Klukkan hvað: kl. 12:00 – 13:00
Staðsetning: Faxafen 10, 2. hæð.- Kennari: Unnur Einarsdóttir, nuddari og jógakennari.
Á meðan á námskeiðinu stendur geta þátttakendur einnig mætt í opna tíma sér að kostnaðarlausu. Mánudagar 10-11:15 Iyengar yoga.
Þriðjudagar 12:00 -13:00 Hatha jóga (Indverska sendiráðið). Föstudagar 13:30 – 14:45 Slökunarjóga.
Laugardagar 10:00 -11:15 Hatha jóga.
“Endurstilltu taugakerfið í hádeginu“ er 4 vikna námskeið sem leggur áherslu á djúpa hvíld. í tímunum er kennt Restorative jóga og hugleiðsla. Lögð er áhersla á lítið tal og ekki er spiluð tónlist í tímunum. Hins vegar er stundum spilað á gong og/eða sristalskálar. Námskeiðið er hugsað sem hvati til að hlúa að sjálfum sér þar sem þátttakendur læra að róa taugakerfið, draga úr streituviðbrögðum og efla líkamsvitund, öndun og nærveru. Áhersla er á að kenna aðferðir sem þátttakendur geta nýtt í daglegu lífi til að efla orkustjórnun, bæta svefn, draga úr álagi og styðja við andlega og líkamlega endurheimt. Á námskeiðinu er einnig notast við söngskálar og Gong.
Verð: kr. 24.900.