Gistingin á Krít

Gistingin í Jógahúsinu

Við höfum valið af kostgæfni stað sem sameinar bæði heimilislega gistingu og mjög góða jógaaðstöðu. Þetta er 4 skiptið sem við förum á þennan stað og við elskum að vera þarna – það munt þú gera líka. Dásamleg náttúrufegurð einfaldleiki og hlýa umvefur staðinn. Staðurinn er líka fullkominn til að geta kennt vandað jóga með fullkominn jógabúnað sem er nauðsynlegur fyrir þann jógastíl sem við Unnur kennum.

Herbergi 1. "Timían"

Herbergið er á jarðhæð með 3 rúmum, eitt af rúmunum á svölum í herberginu. Eigið klósett og sturtuaðstaða. Herbergið er 35 m2.

Mjög þægileg og rúmgóð gistiaðstaða með gott aðgengi beint í garðinn með dásamlegu útsýni yfir hafið.

Verð miðað vi

Herbergi 2, "Nería"

Herbergið er á annarri hæð með 3 rúmum. Eigið ​klósett og sturtuaðstaða. Herbergið er með ​stórum svölum með útsýni yfir bæinn og hafið. ​það er 35 m2 á stærð.

Herbergi 3 "Princess"

Herbergið er á annarri hæð með 1 tvíbreiðu rúmi og ​hentar best fyrir par eða góðar vinkonur. Eigið klósett og sturtuaðstaða ​en einungis er tauhengi sem skilrúm. Herbergið er 35 ​m2. Stórar svalir og útsýni yfir bæinn og sjóinn.

Gisting á hótel Eleana's Art + Nature

Gisting á Eleana’s Art + Nature

NOKKRAR MYNDIR FRÁ JÓGAHÚSINU OG UMHVERFINU