Við bjóðum upp á fjölda tíma í desember. Þeim fjölgar þegar námskeiðunum líkur. Kjörið tækifæri til að koma og prófa jóga hjá okkur eða til að halda áfram að iðka fram að næsta námskeiði.
Hjartanlega velkomin öll.
Restorative jóga (endurnærandi jóga) er mild og róandi jógaiðkun sem miðar að því að endurheimta jafnvægi í líkama og huga. Restorative jóga snýst ekki um að teygja eða styrkja heldur að slaka djúpt á, virkja sef taugakerfið (parasympatíska taugakerfið) og skapa innri frið og endurheimt.
Fríir hádegistímar á þriðjudögum í nóvember
Indverska sendiráðið býður upp á frítt jóga í hádeginu á þriðjudögum.
Velkomin í tímann sem er kl. 12 -13 alla þriðjudaga í nóvember.
Ath. þú þarft að skrá þig í tímann.