Kynningartími fyrir byrjendur í jóga

  • Dagsetning: Miðvikudagur 14. ágúst 2024.
  • Tímasetning: 19 -20:30.
  • Staðsetning: Jógasalur Ljósheima, Borgartúni 3.

Velkomin í kynningartíma fyrir byrjendanámskeið haustsins.

Bríet og Unnur hafa haldið vinsæl námskeið í jóga þar sem lögð hefur verið áhersla á vandaða kennslu í jóga. 

Við erum því að bjóða upp á tvískipt námskeið – annars vegar fyrir byrjendur og hins vegar fyrir vanari nemendur. 

Kynningin sem hér um ræðir er fyrir byrjendur eða fyrir nemendur sem vilja vinna aðeins lengur með grunninn í jóga.

Þessi kynningartími er til þess að þú fáir upplýsingar um kennara námskeiðsins, kennsluaðferðir og markmið kennslunnar. Námskeiðin vara í 3 mánuði og eru því talsverð skuldbinding og gott er að vita að hverju þú ert að ganga.

Við bjóðum þér að vera með okkur í 90 mínútur þar sem við gerum nokkrar vel valdar jógastöður með ykkur og leiðum að lokum alla í góða slökun.

Kynningartíminn kostar kr.3500 (ef þú ert skráð/ur á námskeiðið er hann ókeypis).

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Hlökkum til að sjá þig.