Velkomin á byrjenda námskeið í jóga
Nú er námskeiðið orðið fullt – þú mátt gjarna skrá þig en þá ferðu á biðlista – við látum vita um leið og þú færð pláss.
Dagsetning: 1. september – 8. október 2025 (6 vikur) auk þess sem þú getur mætt í opinn tíma á laugardögum.
Kennslutímar: Mánudagar & miðvikudagar kl. 18:45 – 19:45.
Staðsetning: Faxafen 10, 2. hæð.
Námskeiðið er hannað fyrir byrjendur í jóga sem leita að betri líðan á sál og líkama. Hentar frábærlega fyrir alla sem vilja fara varlega og fá góða leiðsögn. Við leggjum mikla áherslu á að gefa nemendum góða hvíld í lok hvers tíma. Jóganámskeiðin okkar miðast við að nemendur nái djúpum skilingi og færni í jóga. Við kennum Hatha jóga en með mikla áherslu á nákvæmni í kennslu og leiðbeiningum sem auka skilning og dýpt í upplifun af jóga.
Kennarar: Briet Birgisdóttir hjúkrunarfræðingur og Unnur Einarsdóttir nuddari. Báðir kennarar eru með yfir 10 ára reynslu af jógakennslu.
Verð: kr. 34000.
Opnunartilboð fyrir byrjendur kr 24000 við skráningu fyrir 20. ágúst.
Komdu og dýpkaðu jógaiðkun þína í skemmtilegum hópi iðkenda. Hlökkum til að sjá þig.