Við dveljum á eyjunni Krít í litlu sjávarþorpi á suðurhluta eyjunnar. Þar er ákaflega friðsælt og lítið um ferðamenn á þessum tíma vorsins.
Gistingin: Hægt er að velja um gistingu annars vegar í jógahúsinu eða á hóteli í grenndinni. Gistingin í jógahúsinu saman stendur af 3 herbergjum þar sem tveir eða þrír gista saman í herbergi. Öll herbergi eru með eigin baðherbergi. Jógahúsið er ákaflega sjarmerandi gamalt steinhús þar sem lögð hefur verið áhersla á að halda í gamla stílinn. Fyrir þig sem óskar eftir að gista ein/einn í herbergi getum við boðið þér að gista á hóteli skammt frá.
Jógað Boðið er upp á jóga 2x á dag nema daginn sem við komum/förum. Á morgnana stundum við bæði hugleiðslu, dagbókarskrif og iðkum jóga. Jógatímarnir geta verið krefjandi en við leggjum áherslu á að hver iðki á sínum forsendum. Það er alltaf í boði að hvíla eða fá leiðbeiningar sem henta þér hverju sinni. Seinnipartinn leggjum við áherslu á Restorative jóga sem er slökun og hvílandi jóga.
Maturinn: Maturinn samanstendur af dýrindis grænmetisfæði, allt eldað á staðnum úr lífrænum hráefnum frá Krít. Auk grænmetisfæðis er boðið upp á mjólkurafurðir (grísk jógúrt og ostar) og stundum egg. Við förum 2 kvöld út að borða saman svo kokkurinn fái smá frí. Maturinn er algjörlega frábær, nærandi, fallegur og gómsætur.
Afþreying Það er stutt í strendur (um 7 mín. ganga) með kristaltærum sjó. Einnig er hægt að fara í óteljandi gönguferðir upp í hlíðar fjallanna, meðfram ströndinni eða bara labba um litla bæinn og kíkja á kaffihús. Við förum 2 kvöld út að borða saman og heimsækjum jurtagarð þar sem hægt er að kaupa beint frá bónda dýrindis ólivuolíur, sápur og ilmkjarnaolíur auk þess að læra um allar jurtirnar.
Samaria gljúfur Við mælum með að ganga Samariagljúfrið ef þú treystir þér til. Gljúfrið er stórfenglegt og mögnuð upplifun að ganga þetta 16km langa gljúfur. Ef hægt er munum við ganga saman (á eigin ábyrgð) snemma morguns áður en jóganámskeiðið hefst. Gangan endar á suðurhluta eyjunnar og við tökum taxi-bát yfir til Sfakia. Þau sem treysta sér ekki til að ganga taka rútu/leigubíl yfir til Sfakia beint frá Chania. Allir hittast svo í jógahúsinu. Mikilvægt að kynna sér vel þessa göngu áður en þú ákveður að fara í hana, hún getur verið talsvert krefjandi – öll gangan er niður í móti.
Herbergið er á jarðhæð með 2 rúmum. Eigið klósett og sturtuaðstaða. Herbergið er 35 m2.
Mjög þægileg og rúmgóð gistiaðstaða með gott aðgengi beint í garðinn með dásamlegu útsýni yfir hafið. Herbergið er með loftkælingu.
ATH. þetta er 2ja manna herbergi.
Verð:
Herbergið er þriggja manna herbergi. Eigið klósett og sturtuaðstaða. Herbergið er með mjög stórum svölum með útsýni yfir bæinn og hafið. það er 35 m2 á stærð.
ATH. þetta er 3ja manna herbergi.
Herbergið er á annarri hæð með 1 tvíbreiðu rúmi og hentar best fyrir par eða góðar vinkonur. Eigið klósett og sturtuaðstaða en einungis er tauhengi sem skilrúm. Herbergið er 35 m2. Stórar svalir og útsýni yfir bæinn og sjóinn.
Verð:
Hótel Elena sem er 4ja störnu hótel sem er í um 7 mín. göngu fjarlægð frá Jógahúsinu. Mjög falleg hótel í friðsælu umhverfi.
Tveggja manna herbergi:
Verð:
Eins manns herbergi:
Verð:
Morgunjóga og hugleiðsla (2,5 klst)
Dagurinn hefst á nærandi morgunjóga kl. 8:00 – 10:30 sem byggir á Hatha/Iyengar jógahefðinni. Þessar 2,5 klukkustundir leggja áherslu á:
Eftir hugleiðslu gefum við okkur 5–10 mínútur í skrif þar sem við opnum hugann og skráum niður allt sem kemur upp í hugann. Þetta ferli:
Síðdegis restorative jóga (1,5 klst)
Seinni part dagsins kl. 17:30 – 19:00 er tileinkaður róandi restorative jóga, þar sem við lærum og upplifum:
Fræðsla um líkamann og taugakerfið
Á meðan á ferðinni stendur verður fræðsla samþætt í jógaiðkunina þar sem við ræðum:
Markmið ferðinnar
Með þessari blöndu af virkni, slökun, morgunskriftum og fræðslu er markmiðið að veita þér verkfæri til að bæta líkamlega og andlega líðan, styrkja sjálfsvitund og njóta alls þess sem Krít hefur upp á að bjóða í rólegu og nærandi umhverfi.
Við hlökkum til að sjá þig og fylgja þér í þessari einstöku upplifun! 🧘♀️📝✨
Greiða þarf kr. 35.000 í staðfestingargjald sem er ekki endurgreitt ef þátttakandi hættir við ferðina. Ef viðkomandi fær annan aðila til að taka sitt pláss er það sjálfsagt og fær þá endurgreitt. Greiða þarf að fullu fyrir 12. apríl 2025. Ef hætt er við ferðina minna en 8 vikum fyrir ferðina er 50% endurgreitt. Ef hætt er við ferðina minna en 4 vikum fyrir ferðina er ekki hægt að endurgreiða.
Flestir flúga til Chania og gista þar í eina eða fleiri nætur. Við höfum venjulega fengið minibus til að sækja okkur í Chania til að keyra okkur yfir til Hora Sfakia. Aksturinn tekur um 1,5 klst. Mjög falleg leið yfir fjöllin og góð leið til að kynnast aðeins áður en við hefjum jógaiðkunina saman. Verðið hefur verið um 15-20 evrur (báðar leiðir).
Margir nýta sér google flight til þess að finna besta flugið á besta verðinu. Það getur verið skynsamlegt að leita að flugi frá t.d. Kaupmannahöfn, London Amsterdam eða Frankfurt. Athugaðu að stundum eru ferðaskrifstofur líka að selja stök flugsæti. T.d. haf Heimsferðir verið með hentugar dagsetningar með beint flug til Chania.
.
Því miður eru engin pláss laus fyrir þessa ferð – Þú getur samt skráð þig og verið á biðlista eða fengið upplýsingar þegar næsta ferð verður kynnt fyrir 2027.
Velkomin/n með okkur til Krítar. Vorið 2026 verður 5. árið sem við höldum til Krítar.
Við skráningu færð þú sendan greiðsluseðil í heimabanka fyrir:
Reikningar sendir í heimabanka. Allar greiðslur í Evrum fara beint í gegnum Eugenia og Nikos – þau hafa samband við þig upplýsa um greiðslumöguleika í Evrum.