Restorative jóga - síðasti tími fyrir sumarið

  • Dagsetning: föstudagur 10. maí 2024.
  • Tímasetning: 16:00 – 17:15.
  • Staðsetning: Jógasalur Ljósheima, Borgartúni 3.

Restorativejóga er fullkomið fyrir þig sem óskar eftir því að fá að slaka á í 75 mínútur og fá góðar leiðbeiningar um ólíkar slakandi stöður, öndunaræfingar og hugleiðslu. Kennarar eru oftast tveir og hver og einn nemandi fær mikla aðstoð við hagræðingu í hverri stöðu auk þess sem oft eru notaðar þyngingar á líkamann til þess að hjálpa til við að ná dýpri slökun. 

Velkomin í Restorative jóga.